Aðfararorð
 
Kirkjugarðasamband Íslands (KGSÍ) var stofnað í desember 1995 eftir nokkra undirbúningsvinnu, sem meðal annars fólst í því að kanna þörf á slíku sambandi hér á landi. Stjórn KGSÍ telur að blaðaútgáfa á vegum sambandsins sé rökrétt framhald þessa samstarfs. Bautasteinn verður vettvangur umræðu um kirkjugarðamálefni hér á landi, en áætlað er að gefa blaðið út tvisvar á ári, á vordögum og fyrir veturnætur. Stefnt verður að því, að efni í blaðið berist sem víðast að og það upplýsi lesendur um flest er lýtur að kirkjugarðamálefnum. Blaðið verður að mestu fjármagnað með auglýsingatekjum.