Fjögur krónublöð sem merki KGSÍ
 
 
Gunnar Jóhannsson, grafískur hönnuður, hefur gert merki Kirkjugarðssambands Íslands (KGSÍ).
Þegar ráðið er í táknmál merkisins er ljóst að uppistaðan er fjögur krónublöð. Þau má túlka sem tákn landsfjórðunganna og mynda blöðin samhverfan negatífan kross á milli sín. Krónublöðin tengjast síðan upphafsstöfum KGSÍ með tveimur línum og mynda stafirnir og línurnar stöngul og blöð blóms.
Eins má benda á það að krónublöðin eru ekki ósvipuð fiðrildavængjum. Sem kunnugt er þá skríður fiðrildið alskapað og fagurt úr fiðrildapúpu og er um leið táknmynd fyrir umbreytingu og framhaldslíf.
Merki Kirkjugarðasambandsins er í tveimur bláum litum, sá dekkri fyrir neðan er tákn dauðans en hinn ljósari að ofan tákn lífsins.