| Minningaöldur sjómannadagsins heitir minnisvarði sem
Sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði hefur
reist vestan Fossvogskirkju við hlið minnisvarðans um óþekkta
sjómanninn. Hann er gerður úr tilsöguðum grásteini
og myndar fjórar öldur. Á sléttum flötum
Minningaaldanna verður komið fyrir nöfnum sjómanna
og sæfarenda sem drukknað hafa og ekki fundist né komist
í vígða mold.
-

Minningaöldurnar og vitinn eru gerð í
Steinsmiðju S. Helgason í Kópavogi. Arkitekt er Halldór
Einarsson. |
-
- Á hverjum sjómannadegi er lagður blómsveigur
á leiði óþekkta sjómannsins. En það
svarar ekki öllum viðhorfum sem uppi kunna að vera. Guðmundur
Hallvarðsson formaður sjómannadagsráðs hefur
greint frá því að til hans hafi komið ættingjar
nafngreindra sjómanna sem farist hafa og spurt: Hvar og hvernig
geta aðstandendur minnst þeirra sem í hinni votu gröf
hvíla? Minningaöldur sjómannadagsins eru svar við
spurningum af þessu tagi.
- Á sjómannadaginn síðasta, 6. júní
1996, voru Minningaöldurnar vígðar við hátíðlega
athöfn. Letruð eru á minnisvarðann nöfn 12 skipverja
sem fórust með vitaskipinu Hermóði 18. febrúar
1959 og 2 sjómanna er fórust með m.b. Pólstjörnunni
ST-33, 17. desember 1977. Á stalli Minningaalda sjómannadagsins
er áletrun úr Gamla testamentinu, Jesaja spámanni,
43. kafla, 1. versi: "Nú segir Drottinn svo, sá er skóp
þig: Óttast þú eigi, því að
ég frelsa þig með nafni, þú ert minn."
- Aðstandendur, ættingjar og útgerðir geta óskað
eftir því að nöfn sjómanna verði letruð
á minnisvarðann. Stjórn Sjómannadagsins í
Reykjavík og Hafnarfirði veitir gegn gjaldi heimild til skráningar
í samræmi við reglugerð um Minningaöldur sjómannadagsins
sem staðfest var 18. júní 1996.
|