Árið 1989 lagði Aðalsteinn Steindórsson, þáverandi framkvæmdastjóri Skipulagsnefndar kirkjugarða, til að leitað yrði tilboða hjá Landmælingum ríkisins um að hefja loftmyndatöku kirkjugarða. Náðist góð samvinna um þetta við Landmælingar og í framhaldi af því var ráðist í töku loftmynda af 40 kirkjugörðum á Suðurlandi sumarið 1989. Þetta þótti takast það vel og myndirnar vera svo skýrar að á fundi stjórnar Kirkjugarðasjóðs og Skipulagsnefndar kirkjugarða sama ár var ákveðið að fela framkvæmdastjóra að halda þessu áfram og myndi Kirkjugarðasjóður greiða kostnaðinn. Þessi ákvörðun var skynsamleg og framsýn og hefur henni verið fylgt fast eftir. Nú þegar er búið að taka loftmyndir af 230 kirkjugörðum og kirkjustöðum og aðeins 65 eftir. Þessu verki lýkur í sumar. Loftmyndir þessar hafa nú þegar komið að góðum notum og eiga eftir að nýtast vel í framtíðinni. Má nefna að þær hafa verið notaðar til grundvallar við skipulag kirkjugarða og umhverfi þeirra. Þetta hefur m.a. verið gert með því að skanna loftmyndir inn á tölvu og teikna síðan upp af myndinni þær upplýsingar sem nota þarf við skipulag þessara staða. Í þessu felst mikill tímasparnaður og hagræðing og væri æskilegt að koma öllum loftmyndunum á tölvutækt form og útbúa gagnagrunn er nýtist um leið þeim er vinna að skipulagsuppdráttum fyrir viðkomandi staði. |
|
![]() Loftmyndir geta reynst ómetanlegt grunngagn við gerð skipulags og uppdrátta af núverandi aðstæðum en þær verða einnig þegar fram líða stundir mikilvægar sögulegar heimildir. |