Við Kirkjugarðinn á Akureyri verður innan tíðar gerður minningarreitur um týnda og þá sem eiga ástvini sem grafnir eru annars staðar. Það er félagsskapurinn Samhygð, samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri og nágrenni sem hefur fengið úthlutað reit á fallegum og kyrrlátum stað. Þar hyggst Samhygð gera minningarreit þar sem gert er ráð fyrir minnisvarða úr sérvöldu grjóti með viðeigandi áletrun og einnig 28 smærri minnisvörðum úr steini þar sem hægt er að setja nafn hins týnda á lítinn skjöld og festa á steinana. Meðfylgjandi uppdrátt að minningarreitnum hefur Helga Aðalgeirsdóttir landslagsarkitekt gert. |