| Næsti aðalfundur Kirkjugarðasambands Íslands verður haldinn á Höfn í Hornafirði, laugardaginn 7. til sunnudagsins 8. júní n.k. Nú eru um 30 kirkjugarðar í KGSÍ og mun fulltrúum á aðalfundi því að líkindum fjölga. Á fundinum verður m.a. skýrt frá starfi og niðurstöðum nefndar, sem dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði til að kanna tekjurýrnun kirkjugarða og koma með tillögur um úrbætur. Fullvíst er að eitthvað verður gert fundarmönnum og mökum til afþreyingar. Árni Stefánsson, fulltrúi Kirkjugarðs Hornafjarðar í KGSÍ, mun hafa veg og vanda af skipulagi þeirra mála. Aðildarfélögum innan KGSÍ verða send aðalfundargögn með góðum fyrirvara, og fráteknum hótelherbergjum verður ráðstafað með a.m.k. viku fyrirvara. Fyrsti aðalfundur KGSÍ var haldinn á Egilsstöðum, laugardaginn 8. júní 1996. Fundinn sátu 20 fulltrúar 15 kirkjugarða. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf kom Sigurður Blöndal, fyrrverandi skógræktarstjóri, á fundinn og hélt erindi um kirkjur og kirkjugarða á Íslandi og sýndi skuggamyndir og eftir fundinn var farið í Hallormsstaðaskóg og hann skoðaður undir leiðsögn Sigurðar. Á laugardagskvöldið snæddu fundarmenn og makar þeirra saman og áttu góða kvöldstund á Hótel Valaskjálf. Á sunnudaginn var farið til messu, þar sem sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson messaði. Óhætt er að segja að fundurinn á Egilsstöðum hafi tekist vel, veður var gott og allt lék í lyndi.
|