Samkvæmt gögnum sem nefnd dóms- og kirkjumálaráðherra hefur viðað að sér, bendir allt til þess að tekjurýrnun kirkjugarða hafi til orðið tugir prósenta á s.l. 9 árum og skv. því er ljóst að rekstur kirkjugarða stefnir í mikinn hallarekstur á næstu árum, ef ekkert verður að gert.. Eins og kom fram í 1. tbl. Bautasteins, skipaði dóms- og kirkjumálaráðherra nefnd til að rannsaka með hvaða hætti fjárhagsleg afkoma kirkjugarða hefði breyst í kjölfar lagabreytinga, allt frá árinu 1992 og hverrar þróunar megi vænta á fjárhagslegri stöðu þeirra á árinu 1997. Nefndina skipa: Hjalti Zóphoníasson, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneyti, Ásdís Sigurjónsdóttir, deildarsérfræðingur, frá fjármálaráðuneyti, Benedikt Ólafsson frá Kirkjugörðum Akureyrar og Þórsteinn Ragnarsson frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma. Nefndin mun ljúka störfum í vor og mun þá leggja fyrir ráðherra ítarlega skýrslu um tekjurýrnunina, ásamt rekstraráætlunum fyrir stærstu kirkjugarða landsins næstu 5 árin, en þar kemur fram að mikið vantar upp á tekjuhliðina ef garðarnir eiga að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum. Skýrsla nefndarinnar, ásamt fylgiskjölum, verður væntanlega lögð til grundvallar þegar stjórnvöld taka ákvörðun um úrbætur í þessu brýna máli allrar þjóðarinnar. |