Guðmundur Rafn Sigurðsson skrifar:
Umhirða í kirkjugörðum
 
 
 
Guðmundur Rafn Sigurðsson:
Allt að helmingur kirkjugarðsgjalda fer í kostnað við umhirðu garða.

 Í núverandi lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu stendur m.a. í 10. gr.: ,,Kirkjugarðsstjórn sér um að láta taka allar grafir í garðinum, sér um árlegt viðhald legstaða og ber kostnað af prestþjónustu vegna útfara", enn fremur segir í 18. gr.: ,,kirkjugarðsstjórnir skulu láta slá garðana reglulega með varúð og hafa þá að öllu leyti vel og snyrtilega hirta".

Við venjulegar aðstæður má ætla umhirðu kirkjugarða það verkefni sem taki mestan tíma og sé jafnframt kostnaðarsamasti þátturinn í rekstri hvers kirkjugarðs.

Í könnun sem ég gerði 1994 kom í ljós að hjá kirkjugörðum sem hafa færri en 100 gjaldendur, en það er meira en helmingur allra kirkjugarða hér á landi, fór allt að helmingur kirkjugarðsgjalda í kostnað við umhirðu þeirra. Hjá kirkjugörðum með fleiri en þúsund gjaldendur, sem eru flestir kaupstaðir landsins, fór að jafnaði rúmlega þriðjungur kirkjugarðsgjalda í umhirðukostnað.

Í fjölmennum sóknum er upphæð kirkjugarðsgjalda það há að hún getur staðið undir fastaráðningu fólks, til þess að sjá um hirðingu, grafartöku o.fl. Það gefur því auga leið að þessir tekjuhærri garðar eru betur í stakk búnir til að sinna reglulegri umhirðu, en garðar í dreifbýli sem hafa t.d. færri en 100 gjaldendur og eru jafnvel að hluta til háðir sjálfboðavinnu.

Hvernig sem fjárhagsstöðu kirkjugarða er háttað, er nauðsynlegt fyrir stjórnendur þeirra að hafa gott yfirlit yfir tímann sem fer í umhirðu þeirra og hvernig hann skiptist niður á einstaka verkþætti. Til þess að auðvelda þessa skráningu útbjó ég lista sem hér fylgir og dreifði á námskeiði fyrir umsjónarfólk kirkjugarða sem haldið var í Garðyrkjuskólanum vorið 1995.

 

Listinn

Eins og sést á þeim verkþáttum sem koma fram á þessum lista, getur umhirða kirkjugarða verið margbreytileg og oft á tíðum tímafrek.

Ef unnt á að vera að fá fólk til að sinna þessari vinnu svo vel sé verður að tryggja kirkjugörðum nægilegar tekjur til þess að standa undir þeim væntingum og skyldum sem á þá eru lagðar. Með listanum er hægt að fá glöggt yfirlit yfir tíma og kostnað við umhirðu kirkjugarða.