ÁRNAÐARÓSKIR TIL BISKUPA
 
 
Ólafur Skúlasson biskup vígði séra Karl Sigurbjörnsson biskupsvígslu í Hallgrímskirkju sunnudaginn
23. nóvember. Karl Sigurbjörnsson tekur nú við biskupsþjónustu sem biskup Íslands um næstu áramót, þegar
Ólafur Skúlasson lætur af störfum. Kirkjugarðasamband Íslands óskar nýjum biskupi Íslands árnaðar í starfi,
um leið og sambandið þakkar fráfarandi biskupi gott samstarf og góða samvinnu, allt frá stofnun KGSÍ.