Miklar endurbætur á Vatnsfjarðarkirkju og kirkjugarði
 
 
Undanfarin ár hafa staðið yfir gagngerar endurbætur á Vatnsfjarðarkirkju eins og fram kemur í viðtali við Baldur Vilhelmsson prófast í Degi nýlega.
Kirkjan hefur verið endurgerð í hólf og gólf og hefur sóknarnefnd notið aðstoðar og styrks frá Húsafriðunarnefnd. Vatnsfjarðarkirkja er frá 1912.
Enn fremur hefur farið fram endurgerð á kirkjugarðinum og hefur það verið unnið í samráði við skipulagsnefnd kirkjugarða og notið styrks í Kirkjugarðasjóði enda um óvenju mikla framkvæmd að ræða. Meðan unnið var að hleðslu veggjar umhverfis kirkjugarð komu menn niður á fornar rústir bæjar, og telur Baldur sennilegt að þær séu frá tíma Þorvaldar Vatnsfirðings sem uppi var á 13. öld. Ekki reyndist unnt að ljúka að fullu hleðslu umhverfis kirkjugarðinn af þessum sökum. Sérfræðingar frá Þjóðminjasafni hafa skoðið rústirnar en nánari rannsókn bíður. Hjörleifur Stefánsson arkitekt hjá Þjóðminjasafni og Guðmundur Rafn umsjónarmaður kirkjugarða hafa haft umsjón með verkinu.