Heimasíða Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
 
Internetið, Netið eða Veraldarvefurinn eru nöfn á fyrirbæri sem hefur valdið byltingu í samskiptatækni. Netið teygir anga sína um allan heim og er um þessar mundir notað af um 50 milljónum manna. Með aðgangi að Netinu opnast áður óþekktir samskiptamöguleikar. Auk þess opnast aðgangur að gífurlegu magni upplýsinga frá flestum þjóðríkjum heims um leið og möguleikar skapast til að miðla upplýsingum til þeirra sem tengjast Netinu.
Margar stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar hafa sett upp svonefndar heimasíður á Netinu, þar sem hægt er að nálgast upplýsingar í ýmsu formi. Upplýsingarnar eru oftast settar fram í texta, sem er myndskreyttur, en upp á síðkastið eru einstaka heimasíður settar upp í tónum og tali og þar gefst notendum einnig kostur á að sjá kvikmyndir.
Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa sett upp og opnað heimasíðu og er þar hægt að nálgast nánast allar upplýsingar um málefni Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma og þá þjónustu sem þar er veitt. Þess má geta, að Kirkjugarðasambandi Íslands eru gerð nokkur skil á heimasíðunni. Ungur menntaskólanemi, Tryggvi Lárusson, vann tæknivinnuna en Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri, sá um öflun efnis og ritstjórn.

Slóð heimasíðunnar er:
http://www.centrum.is/kirkjugardar/