Kirkjugarður Landakirkju
 

Kirkjugarðurinn og Landakirkja meðan hreinsun á gosefnum stóð sem hæst.

Ljósm. Sigurgeir Jónasson

Landakirkja og kirkjugarðurinn. Myndin tekin í nóv '97.

Ljósm. Halldór Hallgrímsson.

Það féll mikil aska og vikur á kirkjuna og kirkjulóðina í jarðeldunum 1973 og enn meira í kirkjugarðinn sem er nær eldsstöðvunum. Þar sem þykkt öskulagsins var 1,5-2,5 m og stærð garðsins um 1,5 ha var magnið, sem hreinsað var burtu, um og yfir 200 þús. m3. Meirihluti þessa magns var hreinsaður burt með handafli gosárið 1973 og að starfinu komu sjálfboðaliðar, mest útlendingar frá mörgum löndum.
Með samþykkt Aðalskipulags Vestmannaeyja fyrir árin 1988Ð2008, árið 1990 var stækkunarmöguleiki kirkjugarðsins staðfestur, um 0,5 ha í austur og um 0,5 ha í suður, þannig að kirkjugarðurinn verður í framtíðinni um 2,5 ha.
Sama ár og Aðalskipulagið var samþykkt var hafist handa við undirbúning og ræktun þessara viðbótarsvæða og þau tekin inn undir umsjónarsvæði kirkjugarðsins. Framkvæmdir í garðinum stóðu yfir, með nokkrum hléum, fram á árið 1996 og náðu til eftirfarandi verkþátta:

  • Uppgræðsla nýrra svæða, tilflutningur á jarðvegi og svæðin stölluð, allt eftir halla og jarðvegsdýpt.
  • Skipt var um jarðveg í götum garðsins, um 500 m, þær hellulagðar og meðfram þeim steyptir stoðveggir, þar sem landslag krafðist þess.
  • Jarðvegsgryfjur voru steyptar og gáma- og bílastæði malbikað í norðausturhorni garðsins.
  • Nýjar raflagnir voru lagðar og ný lýsing var sett upp í allan garðinn.
  • Lagðar voru nýjar vatns- og frárennslislagnir og eldri lagnir endurbættar.
  • 1,2 m. hár jarðvegsgarður var byggður upp og tyrfður, meðfram austurhlið garðsins.

Samantekt:
Páll Zóphóníasson