Næsti aðalfundur KGSÍ í Borgarnesi
 
 
Stjórn KGSÍ ákvað á fundi sínum, þann 8. nóvember s.l., að næsti aðalfundur Kirkjugarðasambands Íslands verði í Borgarnesi, laugardaginn 13. júní til sunnudagsins 14. júní n.k. Nú eru 33 kirkjugarðar í KGSÍ og mun fundurinn væntanlega verða með svipuðu sniði og undanfarin tvö ár. Stefnt verður að því að dagskrá fundarins verði að hluta til helguð þeim sem vinna útivinnu í görðunum.
KGSÍ var stofnað í september 1995 og hélt sinn fyrsta aðalfund á Egilsstöðum í júní 1996. Síðasti aðalfundur og annar í röðinni var haldinn á Höfn í Hornafirði 7. og 8. júní s.l. og tókst hann með ágætum, þrátt fyrir kalsaveður. Fundinn sátu 27 fulltrúar 17 kirkjugarða. Ásamt mökum var hópurinn rúmlega 40 manns. Eftir hefðbundin aðalfundastörf bauð Árni Stefánsson, fulltrúi KGSÍ á Höfn, hópnum til skoðunarferðar. Farin var rútuferð yfir Almannaskarð í Lónssveit, en þar eiga Árni og hans kona fallegan sumarbústað. Þangað var hópnum boðið og voru veitingar miklar og góðar. Á sunnudagsmorgun var farið til helgistundar í kirkjuna á Höfn og var stundin í umsjá staðarprests, sr. Sigurðar Kr. Sigurðssonar. Eftir hádegi á sunnudegi fór hluti af hópnum í jöklaferð. Farið var í rútu upp á Skálafellsjökul og var ferðin stórkostleg. Þegar upp var komið tók við sleðaferð á vélsleðum. Þetta var hin besta skemmtun, þó að skyggni hafi verið í lágmarki