
Þórsteinn Ragnarsson forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
|
|
Í síðasta Bautasteini (maí 1997) gerði undirritaður grein fyrir kærumálum einkarekinna útfararstofa í Reykjavík gegn Kirkjugörðum Reykjavíkurprófstsdæma (KGRP) og Útfararstofu Kirkjugarðanna (ÚS). Rakin var tilskipun samkeppnisyfirvalda um stjórnunarlegan aðskilnað milli eigenda og dótturfyrirtækis. Nú liggur fyrir að Hæstiréttur hefur fallist á niðurstöðu héraðsdóms og samkeppnisyfirvalda um stjórnunarlegan aðskilnað, að hluta til.
Fyrir tilskipun Samkeppnisráðs var stjórnunin þannig
¥ Stjórn KGRP stýrði báðum fyrirtækjunum (20 manna stjórn).
¥ Sérstök framkvæmdastjórn, kosin úr hópi stjórnar, stýrði KGRP og ÚS.
¥ Sami maður veitti báðum fyrirtækjunum forstöðu.
Niðurstaða hæstaréttar staðfesti tilskipun samkeppnisráðs sem gilt hefur frá 1. janúar 1997:
¥ Stjórn KGRP má sem fyrr stýra báðum fyrirtækjunum (20 manna stjórn).
¥ Sérstök framkvæmdastjórn, kosin úr hópi stjórnar, skal stýra KGRP.
¥ Sérstök framkvæmdastjórn, kosin úr hópi stjórnar, skal stýra ÚS.
¥ Sami maður má ekki vera framkvæmdastjóri ÚS og forstjóri KGRP
Hvaða áhrif skyldi þessi breyting hafa á meinta skaðsemi í samkeppni, sem fyrrum samnýting stjórnunar átti að hafa í för með sér? Vissulega engin áhrif, það vita allir sem þekkja þau störf sem unnin eru á þessum vettvangi. Nú sem fyrr mun stjórn KGRP halda um stjórnvölinn og skipa málum eins og best verður á kosið fyrir þá fjölmörgu einstaklinga sem leita eftir þjónustu Útfararstofu kirkjugarðanna og Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma og í fullu samræmi við gildandi lög.
|