Handhæg legstaðaskrá í mótun á Akureyri
 
 

Smári Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar.
Á fundi Kirkjugarðasambands Íslands í Borgarnesi mun Smári Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða Akureyrar kynna legstaðaskrá sem hann hefur unnið að það rúma ár sem hann hefur gegnt starfi sínu. Hér er um athyglisverða tilraun að ræða þar sem skipulag garðsins og skráning legstaða er tengd saman og þar sem hægt er að kalla fram ratkort og hverskyns upplýsingar um þá sem grafnir eru í garðinum.
Bæði er mögulegt að nota legstaðaskrána sem einfalt upplýsinga- og leitarforrit sem hægt væri að gera aðgengilegt öllum almenning, t.d. á Internetinu eða á tölvuskjám í afgreiðslu kirkjugarðanna þar sem unnt væri að fá útprentaðar upplýsingar og ratkort í garðinn. En á bak við hinar almennu upplýsingar eru síðan nákvæmri skráningar, sem einungis eru aðgengilegar þeim sem hafa sérstakt leyfi, og taka til fjölmargra atriða sem fróðleg eru fyrir þá sem hafa áhuga á ættum, sögu og staðfræði.
Böðvar Eggertsson hefur verið Smára til tæknilegrar aðstoðar við gerð gagnagrunnsins sem er í svokölluðu File Maker forriti bæði fyrir PC og Macintosh. Hann hefur þegar lokið við að færa inn upplýsingar um 1600 einstaklinga en mikið verk er eftir og verður það æ torsóttara eftir því sem fært er lengra aftur í tímann vegna gloppóttra upplýsinga, en um 7000 eru grafnir í kirkjugörðum Akureyrar.
Ekki er að efa að mikill áhugi verður á að kynna sér legastaðakerfi Smára á aðalfundi KGSÍ.