| Akureyringar eru farnir að huga að nýjum kirkjugarði, enda verður Kirkjugarðurinn við Þórunnarstræti fullsettur að 20-25 árum liðnum nema hann verði stækkaður. Stjórn kirkjugarðanna hefur talið hagkvæmast að fá spildu lands vestan Þórunnarstrætis til þess að stækka garðinn og nýta þannig sem best myndarlegar byggingar og tæki sem þarna eru á svæðinu. Skipulagsyfirvöld á Akureyri hafa hafnað þessari málaleitan enda er í ráði að úthluta lóðum undir íbúðabyggingar þar sem hagkvæmast væri að hafa útvíkkun kirkjugarðsins. Lóðir á þessum stað verða áreiðanlega mjög eftirsóttar. Kirkjugörðum Akureyrar hefur verið vísað á nýjan stað fyrir kirkjugarð í Lögmannshlíð en forráðamönnum garðanna finnst hann liggja of hátt og vera langt þangað. Hætt er við að snjóalög og veður gætu orðið erfið á þessum stað, enda er hann ofar allrar ráðgerðrar íbúðabyggðar. Kirkjugarður á þessum stað kallar á ãtvöfaltÒ úthald og verður ekki ãgrænn reitur í bæjarskipulaginu þangað sem fólk kemur og minnist ástvina og leitar að hugarró og samhengiÒ eins og einn viðmælandi Bautasteins á Akureyri orðaði það: ãKirkjugarður á ekki að vera á hrakhólum heldur hluti af byggðinniÒ. Hugmyndir eru því uppi um að tengja nýjan garð við gamla garðinn við Lögmannshlíðarkirkju eða leita enn hófanna um stækkun Kirkjugarðsins við Þórunnarstræti til vesturs.
|