Meirihluti jákvæður gagnvart bálförum

Flestu fólki finnst það ekki þekkja vel til líkbrennslu eða bálfara en flestir vilja vita meira. Meirihluti fólks, eða rúmlega 59%, er almennt jákvæður gagnvart þessari tegund útfarar.
Gallup kannaði viðhorf fólks á aldrinum 18-75 ára til bálfara og líkbrennslu fyrir Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Úrtakið var 1132 einstaklingar af öllu landinu og var svarshlutfallið 72,0%.
Niðurstöður eru þær helstar að einungis 16% fólks á aldrinum 18-75 ára finnst það þekkja vel til líkbrennslu eða bálfara. Höfuðborgarbúum finnst í meira mæli en landsbyggðarbúum að þeir þekki til þessa útfararháttar. Meirhluti þeirra sem ekki þekkja vel til líkbrennslu eða bálfara sagðist myndi vilja vita meira. Það hlutfall er hærra meðal kvenna en karla en lægst hjá sérfræðingum.
Meirihlutinn, eða rúmlega 59%, er almennt jákvæður gagnvart þessari tegund útfarar. Rúmur fjórðungur er hvorki jákvæður né neikvæður og tæplega 16% neikvæð. Hlutfall jákvæðra er hærra meðal yngra fólks en þess eldra.

kurit.gif (6310 bytes)

Kynningarritið Bálför

Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma hafa gefið út kynningarrit undir heitinu Bálför. Þar er rakinn ýmis fróðleikur, bæði gamall og nýr, um bálfarir og veittar gagnlegar upplýsingar. Þessi útgáfa bætir úr brýnni þörf fyrir hlutlausa mynd af þeim útfararsið sem færst hefur í vöxt hér á landi allt frá stofnun Bálstofunnar árið 1948, eins og Þórsteinn Ragnarsson forstjóri Kirkjugarðanna víkur að í formála ritsins. Kynningarritið er 14 síður liggur frammi á skrifstofu Kirkjugarða Reykjavíkurprófasta og er einnig við hendina hjá prestum og söfnuðum.

Þróun bálfara

Þróun bálfara á þessari öld hefur orðið hröð víða um heim. í Evrópu er hlutfallið hvað hæst í Tékklandi, en þar eru bálfarir rúmlega 72% af tölu látinna. Bretland fylgir fast á eftir með tæplega 71% hlutfall. Í Bandaríkjunum er hlutfallið rúmlega 20%, en í Japan er bálfarir tíðastar, þar er hlutfallið tæplega 99% af tölu látinna. Á Norðurlöndum hefur þessi þróun orðið mjög hröð. Í Danmörku er hlutfallið hæst, þar eru bálfarir 69% af tölu látinna og næst kemur Svíþjóð með 65% hlutfall. í Noregi er hlutfallið 30%, í Finnlandi er það 20% og á Íslandi tæplega 12% (tölur frá 1996).
Bálfarir á Íslandi hafa aukist hægt en örugglega frá því að bálstofan í Fossvogi hóf starfsemi sína árið 1948. Láta mun nærri að sjötta hver útför sé bálför, ef litið er til útfara í Reykjavíkurprófastsdæmum. Hlutfallið á landsvísu er rúmlega 11%