Norræna samstarfið - fundur í Finnlandi

Þann 27. mars sl. hélt stjórn NFKK (Nordiska förbundet för kyrkogŒrdar och Krematorier) fund í Turko (bo) í Finnlandi. Öll norrænu löndin, þ.e.a.s Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland og Ísland eiga fulltrúa í stjórn. Þórsteinn Ragnarsson, formaður KGSÍ, sótti fundinn af hálfu Íslands. verkefni fundarins var m.a. að velja fulltrúa frá hverju landi í faghópa. Faghóparnir verða a.m.k. fimm: Kirkjugarðshópur, bálstofuhópur, ráðstefnuhópur, þróunarhópur og markaðshópur. Frá Íslandi verða fyrst um sinn fulltrúar í tveimur hópum: Sigurjón Jónasson, rekstrarstjóri KGRP, verður fulltrúi Íslands í faghópi, er fjalla mun um líkbrennslu og bálstofur og Þorsteinn Ragnarsson, forstjóri KGRP, verður í hópi, sem fjallar um kirkjugarða og stjórnun þeirra. Faghóparnir munu koma saman einu sinni á ári og skila skýrslu til stjórnar NFKK. Umræðuefni hópanna mun síðan skila sér jafn óðum inn á síður Bautasteins og þannig munu aðildarfélagar innan KGSÍ o.fl. geta fylgst með því helsta sem er á döfinni. Þess má geta að kostnaður við norræna samstarfið er greitt af þeim kirkjugarði, sem viðkomandi fulltrúi kemur frá.