Norskur fyrirlesari kemur í heimsókn
 
 

Josef Bentzen forstjóri Leif J. Bentzen a.s.
Jósef Bentzen útfararstjóri og aðaleigandi Leif J. Bentzen a.s. í Moss, Noregi, heldur fyrirlestur í matsal Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma í Fossvogi, fimmtudaginn 4. júní kl. 17.00. Fyrirlestur hans er ætlaður prestum, starfsmönnum kirkjugarða og útfararstofa og fjallar hann um siðfræði, fagurfræði og siðareglur sem eiga að gilda hjá þeim þjónustuaðilum sem koma að útförum.

Jósef mun byggja fyrirlesturinn upp með hliðsjón af eftirfarandi þáttum:
  • Lagalegum bakgrunni
  • Sögulegum bakgrunni (kulturhistorien/tradisjonen)
  • Hinum látnu
  • Aðstandendum
  • Þeim sem koma í kirkjugarðana
  • Starfsmönnum kirkjugarða

Fyrirlesturinn verður túlkaður og er hann opinn öllu áhugafólki meðan húsrúm leyfir.