| Mánudaginn 20. apríl s.l. kom stjórn kirkjugarðasjóðs saman á fundi á Biskupsstofu til að úthluta styrkjum úr sjóðnum til kirkjugarða fyrir 1998. Fyrir lágu 51 styrkbeiðni að fjárhæð tæpar 60 milj. króna. Vandi stjórnar sjóðsins var því mikill að velja og hafna í ljósi þeirrar miklu skerðingar sem sjóðurinn hefur orðið fyrir með lagabreytingunni á síðasta ári. Á fjárlögum 1998 renna 17 milj. til sjóðsins og er reiknað með svipaðri upphæð 1999. Samkvæmt tillögu nefndarinnar var 36 kirkjugörðum úthlutað rúmlega 21 milj., 2.0 milj. var úthlutað til annara verkefna s.s. merkinga niðurlagðra garða ofl. og 3.7 milj. til kirkna, þjónustu- og líkhúsa, eða samtals um 27 milj. Sjóðstjórnin hafði að leiðarljósi við úhlutun ársins að úthluta ekki hærri upphæð en 1 milj. í einstakt verk. Á þessu ári verður mismunur á því sem úthlutað verður og því framlagi sem kemr á fjárlögum brúað með því að taka úr varasjóði sem til varð á árum áður og hefur verið í vörslu bankastofnunar. Sjóðstjórnin taldi nauðsynlegt að fara þessa leið í ár sökum stöðu margra verkefna sem í gangi eru og undirbúin hafa verið af kostgæfni og mikla væntingar hafa verið bundnar við. Fyrirsjáanlegt er að á næsta ári verða slík úrræði takmarkaðri og að úr mun minni fjárhæð verði þá að spila. Þó svo að stóru tímamótin ár 2000 nálgist verður sjóðurinn að horfast í augu við þá dapurlegu staðreynd að fyrir þau tímamót, verður ekki hægt að ljúka öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem til stóð að ljúka áður en aldamótaárið rennur upp. Einar E.Sæmundsen landslagsarkitekt Eftirtaldir kirkjugarðar og verkefni hlutu styrk í ár:
|