|
| |
 |
Helgidómur
í Garðabæ |
 |
| Síðastliðið haust birtist frétt í Morgunblaðinu þess efnis að stór og
dýrðleg ljósakróna, húðuð með 24 karata gulli í bak og fyrir, að verðmæti yfir
einni milljón króna, hefði verið flutt til landsins. Í kjölfar fréttarinnar seldist
krónan og fljótlega spurðist út að Gísli Holgersson, sem flutt hafði krónuna inn,
væri búinn að festa,kaup á fleiri slíkum og opna sérstakan sýningarsal fyrir
dýrgripina. Útsendari Bautasteins lagði leið sína á Garðatorg til að skoða salinn
og ná tali af Gísla. |

Gísli í bláa salnum. |
Eigandinn
opnar salinn stoltur í bragði og fljótlega kemur í ljós hvers vegna. Þetta er
fallegt hringlaga herbergi, glæsilega skreytt í sígildum stíl. Dökkt
harðviðargólf, virðulegir kóngabláir veggir, þykk skarlatsrauð gluggatjöld og svo
sjálfir sýningargripirnir, ljósin sem varpa daufri gullinni birtu á umhverfið. En
hvernig varð þessi sérstaki sýningarsalur til? Það var þannig" segir
Gísli að nokkrum klukkutímum eftir að fréttin birtist í Morgunblaðinu hringdi
séra Karl Matthíasson frá Grundarfirði og bað mig um að taka krónuna frá fyrir
sig. |
| Maður
að nafni Þorkell Jóhann Sigurðsson hafði gefið kirkjunni á Grundarfirði eina
milljón króna til minningar um eiginkonu sína og ætlunin var að verja þessum
peningum í ljós fyrir kirkjuna. Í framhaldi af þessu fóru þeir að leita að
ljósakrónu og höfðu, þegar hér kom sögu, leitað í heilt ár. Þegar þeir sáu
krónuna okkar í Morgunblaðinu sáu þeir að leitin var á enda, því hún uppfyllti
þær óskir sem þeir höfðu gert sér. Upp úr þessu ákváðum við að flytja inn
meira af þessum ljósum, og strax frá byrjun var hugmyndin sú að hafa þau alveg sér
og aðskilin frá öðrum vörum sem við flytjum inn. Bryndís Jónsdóttir arkitekt
hjálpaði mér að hanna og innrétta húsnæðið. Ljósin sem þú sérð hanga hér
nú eru nokkrar mismunandi gerðir króna og veggljósa, sem hverju um sig má breyta,
stækka eða minnka eftir þörfum hvers og eins. Hönnunin er talsvert mismunandi eftir
tegundum, en allar eiga ljósakrónurnar sameiginlegt að vera húðaðar 24 karata
gyllingu." Fjölskyldan
lengi í ljósunum
Salurinn hjá
Gísla er afskaplega hátíðlegur á að líta, en auk ljósanna eru aðeins ör fáir
hlutir þar inni. Á vegg er gömul mynd í fallegum ramma og Gísli var spurður um hana.
Þetta er mynd af langafa mínum sem var kaupmaður í Hólminum og dó árið
1901" svarar hann. Það má segja að salurinn sé einskonar helgidómur
fjölskyldunnar. Við höfum lengi fengist við ljósin í okkar fjölskyldu, því hann
langafi minn, og foreldrar hans á undan honum, söfnuðu grút frá sjávarplássunum á
Snæfellsnesi, settu á tunnur og fluttu til Danmerkur, þar sem hann var settur á kyndla
sem lýstu upp götur, torg og stræti í kóngsins Kaupmannahöfn, eins og Halldór
Laxness lætur Jón Hreggviðsson komast að sér til hneykslunar í
Íslandsklukkunni". Það er því vel við hæfi að myndin af langafa hangi
hér í ljósadýrðinni. Í raun er þessi salur ekki byggður eingöngu í
hagnaðarskyni, heldur einnig af tilfinningu. Þetta eru fyrst og fremst listaverk. Við
höldum þessu alveg aðskildu frá öðrum rekstri og opnum salinn aðeins eftir þörfum
þegar fólk vill skoða hann. Þeir sem koma hingað inn verða gjarnan mjög hrifnir og
þeir tilfinninganæmustu hafa jafnvel klökknað hér inni segir Gísli um leið og
hann hleypir fullum straumi á stærstu krónuna í salnum. Og það er sannarlega
tignarlegt að líta þessa ljósadýrð. Gullið endurkastar birtunni frá ótal perum,
þannig að engu líkara er en krónan öðlist líf í ljósinu. Tengiliður okkar
á Ítalíu kom sérstaklega hingað til lands til að vera viðstaddur opnunina"
bætir hann við. Við héldum glæsilega veislu og létum hann opna salinn með
viðhöfn. Hann var ákaflega hrifinn, bæði af því, hve fallegur salurinn okkar var,
og eins því að við skyldum búa sérstaklega um þessi ljós þannig að engin önnur
væru nærri. Hann sagði okkur að þetta hefði hvergi annars staðar verið gert
áður. Það skiptir miklu máli að lýsingin frá gullkrónunum sé ekki menguð með
annars konar birtu.
Í
snertingu við guðdóminn
Margir sem
heimsækja sýningarsalinn verða mjög snortnir segir Gísli. Gullið,
ljósið og blár liturinn á salnum hafa sterk áhrif á marga. Birtan er engu lík og
margir falla bókstaflega í stafi af hrifningu þegar þeir upplifa þetta. Kirkjur eru
mjög viðeigandi fyrir svona gripi, en maður getur hugsað sér marga aðra staði þar
sem þeir hæfðu vel. Nú þegar hafa margir komið og skoðað salinn okkar og margir
eru á leiðinni. Þessi ljós eru til af öllum stærðum og gerðum og hægt er að
sérpanta gripi eftir þörfum hvers og eins. Allar þær krónur sem eru til sýnis hér
er hægt að fá í stærri útgáfum, í sama stíl. Þær kosta frá bilinu 90 þúsund
til einnar milljónar króna, en stærri krónur þarf að panta sérstaklega.
Ljósakrónan sem fór til Grundarfjarðar er sú stærsta sem komið hefur til landsins
hingað til. |
|