|
| |
| Næsti
aðalfundur í Vestmannaeyjum |
| Næsti aðafundur Kirkjugarðasambands
Íslands verður haldinn í Vestmannaeyjum, dagana 12. og 13. júní næstkomandi. Í
KGSÍ eru nú 39 kirkjugarðar sem samtals fá yfir 90% af kirkjugarðsgjöldum á
land-inu. Sambandið hefur náð að festa rætur og nær nú til allra landshluta, eftir
að rúm 3 ár eru liðin frá stofnun þess. Í tengslum við aðalfundinn mun
fyrirtækið Hvellur ehf. setja upp tækja- og áhaldasýningu og er sýningin
sérstaklega sniðin fyrir garðyrkju. Sérstök dagskrá verður útbúin fyrir maka
fundarmanna og verður eflaust skemmtilegt að fara um eyjarnar í fylgd heimamanna. Fjölbreytt
dagskrá verður á fundinum:
Fjármál kirkjugarða:
Þórsteinn Ragnarsson,
formaður KGSÍ, gerir grein fyrir störfum eftirlitsnefndar, sem skipuð var af
kirkjumálaráðherra í janúar 1998 og hefur það hlutverk að fylgjast með afkomu
kirkjugarða, eftir lagabreytingu í desember 1997 sem hafði 4,3% aukahækkun
kirkjugarðsgjalds í för með sér.
Umhirða kirkjugarða:
Smári Sigurðsson,
forstöðumaður Kirkjugarða Akureyrar, heldur fyrirlestur um hirðu kirkjugarða.
Kynning á
Kirkjugarðasjóði: Guðmundur
Rafn Sigurðsson, framkv.stj. Skipulagsnefndar kirkjugarða, mun segja frá starfsemi
sjóðsins og gera grein fyrir úthlutunum úr honum sl. 10 ár.
Samnýting
tölvuhugbúnaðar:
Með tilkomu veraldarvefsins
hafa möguleikar á samnýtingu hugbúnaðarkerfa aukist gríðarlega fyrir starfsemi, sem
er landfræðilega dreifð. Aðgangur að miðlægum gagnagrunnum er nú einfald-ur fyrir
alla kirkjugarða. Minni garðar þurfa einungis tölvu og símatengingu við
gagnagrunninn. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða
Reykjavíkurprófasts-dæma, gerir grein fyrir skýrslu um upp-lýsingatækni, sem unnin
var fyrir KGRP.
Málefni
útfararþjónustunnar:
Stjórn KGSÍ mun leggja til að
3. gr. laga KGSÍ verði breytt þannig að í stað síðustu setningar sem hljóðar
þannig: Hver stofnun fer með 1 atkvæði á fundum sam-bandsins" stæði:
Hver stofnun fer með 1 atkvæði á fundum sambandsins, aukaaðilar hafa ekki
atkvæðisrétt." Ef lagabreytingin nær fram að ganga mun stjórnin leggja til að
aðalfundur samþykki að gefa aðilum í útfararþjónustu kost á aukaaðild að KGSÍ.
Endurskoðun laga um
kirkjugarða og samræming reglna um kirkjugarða:
Skipa þarf nefnd innan KGSÍ með það hlutverk að fara yfir lög og reglugerðir
með tilliti til þess að strika út úrelt ákvæði og bæta inn nauðsynlegum
ákvæðum, ásamt því að samræma reglur um kirkjugarða, þar sem það á við.
Þeir fulltrúar kirkjugarða, innan KGSÍ, sem ætla að sækja aðalfundinn, eru
vin-samlega beðnir að hafa samband við Sigurjón Jónasson, rekstrarstjóra KGRP, eða
starfsfólk á skrifstofu KGRP, í síma: 585-2700 fyrir 1. maí n.k., svo hægt verði
að ganga frá hótelpöntunum (til einnar eða tveggja nótta) og skipulagi varðandi
mat, með nauðsynlegum fyrirvara. Fundarmenn sjá sjálfir um ferðir til og frá
fundarstað. |
|