|
| |
| Fundur
stjórnar NFKK og faghópa á Íslandi. |
| Dagana 6. og 7. maí n.k. verða haldnir norrænir fundir um
málefni kirkjugarða og bálstofa á Hótel Sögu. Stjórnarfundur NFKK (Nordisk Forbund
for Kirkegårde og Krematorier) verður haldinn 7. maí. Í stjórn NFKK sitja fulltrúar
allra norrænu landssambandanna og er Þórsteinn Ragnarsson, formaður
Kirkjugarðasambands Íslands, fulltrúi KGSÍ í stjórninni. Daginn áður funda
fagnefndir innan NFKK, en þær eru tvær: Kirkjugarðanefnd og bálstofunefnd.
Þórsteinn er fulltrúi KGSÍ í Kirkjugarðanefndinni og Sigurjón Jónasson,
rekstrarstjóri KGRP, er fulltrúi KGSÍ í bálstofunefndinni. U.þ.b. 15 manns frá
öllum Norðurlöndunum sækja þessa fundi. |
|